Fimm ára ábyrgð

7 góðar ástæður þess að kaupa Toyota. #1 | #2 | #3 | #4 | #5 | #6 | #7

Toyota á Íslandi hóf, eitt íslenskra bifreiðafyrirtækja, að bjóða 5 ára ábyrgð á allar nýjar bifreiðar sínar frá og með 1. janúar, 2010.

Ábyrgð þessi er af sömu ætt og hefðbundin 3 ára verksmiðjuábyrgð Toyota Motor Europe á þeim bílum sem Toyota á Íslandi hefur selt hingað til, en hefur verið framlengd á þann mátann að 4. og 5. árið er nú einnig varið af áðurnefndri ábyrgð, þó með ákveðnum undantekningum frá því sem viðgengst fyrstu 3 árin – sjá hér.

Þessi ábyrgð, sem gildir í 5 ár eða að 160 þúsund km akstri, hvort sem á undan kemur.  Toyota á Íslandi greiðir sjálft fyrir þessa ábyrgð til framleiðandans og er hún einn liður í því að tryggja hag Toyota eigenda sem og að hámarka endursöluvirði bifreiða þeirra.

Senda á
Prentað þann 23. febrúar 2012