Toyota fær umhverfisverðlaun
Toyota hefur fengið verðlaun frá Kópavogsbæ fyrir athyglisvert framlag til umhverfismála. Þar var litið til þess að Toyota er eitt af fjórum íslenskum fyrirtækjum með ISO 14001 umhverfisvottunina og umhverfismál eru því alltaf höfð til hliðsjónar í rekstri fyrirtækisins. Einnig er litið til stuðnings Toyota við Skógræktarfélag Íslands, Bláa herinn og Surtseyjarrannsóknir og virka þátttöku starfsmanna í skógrækt.
Á myndinni er Úlfar Steindórsson, forstjóri Toyota á Íslandi í hópi þeirra sem fengu viðurkenningu frá Kópavogsbæ ásamt bæjarstjóranum í Kópavogi og umhverfisnefnd bæjarins
