Fyrirtæki og rekstraraðilar

Ásamt því að bjóða fyrirtækjum og rekstraraðilum almenn bílalán og kaupleigusamninga þá býður Toyota þessum aðilum þrjár aðrar leiðir við kaup á nýjum bílum.
- Í fyrsta lagi er um að ræða rekstrarleigu þar sem fyrirtækið greiðir aðeins mánaðarlegar greiðslur en enga útborgun.
- Í öðru lagi geta fyrirtæki og rekstraraðilar keypt bílinn sem svokallaðan VSK-bíl og er þá heimilt að telja til innskatts virðisaukaskatt af verði bílsins. - Í þriðja lagi geta fyrirtæki og rekstraraðilar keypt VSK-bíl á rekstrarleigu og talið til innskatts virðisaukaskatt af mánaðarlegum greiðslum.

1. Rekstrarleiga fyrirtækja
Rekstrarleiga er þríhliða leigusamningur milli lánveitenda, leigutaka og seljenda. Lánveitandi kaupir bíl sem fyrirtækið eða rekstraraðilinn leigir í umsaminn tíma, og skilar honum síðan til umboðs í lok leigutíma. Kaupandi greiðir enga útborgun því lánveitandi fjármagnar bílinn að fullu. Smurþjónusta, þjónustuskoðanir og allt reglubundið viðhald er innifalið. Rekstrarleiga er í boði til 12, 24 eða 36 mánaða.

Allir bílar sem Toyota hefur á boðstólnum er hægt að fá á rekstrarleigu fyrirtækja. Nánari upplýsingar veita sölumenn Toyota.

Helstu kostir rekstrarleigu Toyota
- Engin útborgun.
- Bifreið er hvorki eignfærð né afskrifuð í bókum leigutaka.
- Regluleg endurnýjun bifreiðar.
- Engin áhætta vegna endursölu bifreiðar.
- Virðisaukaskattur fæst endurgreiddur ef um vsk. bifreið er að ræða.

2. VSK-bílar
Þeir Toyota bílar sem eru í boði sem VSK-bílar eru Yaris, Corolla, Avensis og Hiace.
Skoða verðlista fyrir VSK-bíla.

3. Rekstrarleiga á VSK-bíl
Um slíka bíla gilda sömu reglur og um aðra VSK-bíla en kostirnir við þessa leið eru að fyrirtækið greiðir enga útborgun heldur aðeins mánaðarlegar greiðslur og geta talið til innskatts virðisaukaskatt af greiðslunum.

Reglur um VSK-bíla
Til þess að heimilt sé að telja til innskatts virðisaukaskatt vegna VSK-bíla verða þeir að vera eingöngu notaðir vegna sölu á vörum eða þjónustu.

Ökutæki er ekki talið notað eingöngu vegna sölu á vörum eða þjónustu ef það er notað af eiganda þess eða starfsmanni hans til einkanota (t.d. aksturs milli heimilis og vinnustaðar).

Skilyrði þess að telja megi til innskatts virðisaukaskatt af VSK-bíl er að bíllinn sé með VSK-númerum (litur á stöfum, brúnum og tígullaga fleti er rauður). Þessi regla gildir þó ekki um bifreiðar eignaleigufyrirtækja þegar leigutaki hefur ekki rétt til innskatts af leigugjaldi svo og bifreiðar bílaleigufyrirtækja.

Farmrými í öllum bílum sem sem seldir eru sem VSK-bílar er breytt skv. reglugerð ef þess er þörf.

Nánari upplýsingar um reglur varðandi VSK-bíla:
Reglugerð um innskatt 192/1993
Reglugerð um skráningu ökutækja 078/1997

Senda á
Prentað þann 17. maí 2012