Festu farminn tryggilega með festikrókum á utanverðum pallinum.

Fáanlegt á DLX og DLX+ (aðeins á single Cab).
Verndar Hiluxinn þinn fyrir farmi á palli. Hamlar ekki notkun á rennanlegum aftur glugga.

Fáanlegt fyrir DLX og DLX+.
Stefnuljós eru innbyggð í krómaða og upphitaða hliðarspeglana sem ýtir undir sportlegt og nútímalegt útlit.

Fáanlegt fyrir SR, SR+.
17" álfelgur setja enn flottari svip á Hilux.

Fáanlegt fyrir SR+.
Stílhrein innfelld þokuljós tryggja að þú sérð og sést betur í jafnvel hinni dimmustu þoku.

Aukahlutur á DLX+ Double Cab, staðalbúnaður á SR og SR+.
Sjálfskiptingin er mjúk, skilvirk og alltaf tilbúinn að beita aflinu þegar þú þarft á því að halda.

Fáanleg á SR and SR+ (Aðeins með 3.0 lítra Double Cab).
Sjálfvirk loftræsting heldur hitastiginu þar sem þú vilt hafa það.

Fáanlegt á SR+.
Leðurklætt stýrið með krómáferð eykur þægindi og fágun.

Fáanlegt á SR and SR+.
Sex hátalara hljómkerfi með útvarpi, geislaspilara og USB/aux tengimöguleikum fyrir iPod og MP3 spilara skilar frábærri tónlistarupplifun.

Fáanlegt á SR og SR+.
2,5 lítra D-4D-vélin skilar hámarks aflnýtingu og tog- krafti. Minni vélarnúningur bætir eldsneytisnýtingu og dregur úr útblæstri og á sama tíma er hávaði og titringur í lágmarki sem eykur þægindin til muna.
3,0 lítra D-4D dísilvélin er með aflið þegar þú þarft á því að halda. Hér er lögð jafnmikil áhersla á hagkvæmni og umhverfisvæna dísiltækni þar sem eldsneytinu er sprautað inn við háan þrýsting sem skilar framúrskarandi afköstum og meiri akstursánægju.
Fjöðrunarbúnaður í þyngri Toyota bílum er hannaður með tilliti til styrkleika og endingar. Hvort sem um ræðir blaðfjaðrir, eltiarm eða tveggja spyrnu fjöðrun þá skilar hver samsetning hámarks afköstum og akstursþægindum.
Stöðugleikastýringin (VSC) virkjar hverja bremsu fyrir sig eftir þörfum og stýrir afköstum vélarinnar til að viðhalda stöðugleika og forðast skrið í snöggum beygjum eða hálku.
Hilux er búinn sex loftpúðum. Þ. á m. eru SRS-loftpúðar fyrir ökumann og farþega, hliðarloftpúðar og loftpúðatjöld fyrir farþega í fram- og aftursætum.
ABS-kerfið kemur í veg fyrir að hjólin læsist þegar bremsað er. Rafstýrða hemlunardreifingin (EBD) styrkir þennan eiginleika með því að dreifa hemlunaraflinu jafnt milli hjólanna til að jafna út álagið. Í sameiningu aðstoða kerfin þig við að halda stjórn á bílnum þegar bremsað er af afli.
Hemlunarhjálpin (BA) nemur þegar þú nauðhemlar og bætir í hemlunarkraftinn. Með þessum hætti skilar ABS fullum afköstum.
Skjárinn birtir sjálfkrafa myndir úr bakkmyndavél þegar bakkað er.
Birtuskynjarinn nemur birtustigið og kveikir sjálfkrafa á framljósunum þegar birtan er lítil.
Hilux hefur skapað sér verðskuldað orðspor sem kraftmikill bíll. Hann kemst án vandræða um hvaða veg sem er, sama hve erfiðar aðstæðurnar eru. Það þýðir þó ekki að þægindi hafi vikið fyrir notagildi. Hilux hentar jafn vel í borgarumhverfi.
Láttu reyna á'ann