Hjartað í áætlun okkar er Hybrid Synergy Drive, full hybrid tækni sem við höfum verið að þróa í mörg ár.

Toyota full hybrid innleiðingin hófst árið 1997 með Toyota Prius sem frumraun... 13 árum síðar nýtist kerfið nú í yfir 2,3 milljónum bíla á heimsvísu.

Orðið hybrid þýðir einfaldlega blanda af tveimur eða fleiri hlutum. Í tilfelli Toyota þýðir það afl frá tveimur orkugjöfum, rafmótor og vél er gengur fyrir eldsneyti.
Til að hjálpa ykkur að skilja hvernig það virkar, skulum við líta á tvímennings reiðhjól.

Tvímenningsreiðhjól er einnig hybrd ökutæki af því það hefur tvo orkugjafa... manneskjuna fyrir framan og manneskjuna fyrir aftan. Á tvímenningshjólinu hefurðu val, manneskjan fyrir aftan getur hjólað ein, manneskjan fyrir framan getur hjólað ein... eða þær geta báðar hjólað saman. Sama hver samsetningin er, keðjan og gírarnir sjá til þess að orkan kemst til skila til hjólanna.

Það sama gildir um Hybrid Synergy Drive. Fyrir mörgum árum áttuðu tæknifræðingar Toyota sig á því að meðan rafmótor gat knúið bíl á litlum hraða, þá gat vél sem knúin er áfram af eldsneyti komið honum á mikin hraða... Það þótti því rökrétt að með því að sameina þetta tvennt, þá næðu þeir ótrúlegum árangri.
Með rafstillinguna á, akandi eingöngu um á rafmagni, er hægt að aka allt að 2 km á 50 km hraða á klst., í allt að því hljóð- og mengunarlausum akstri.

Við meiri hraða tekur bensínvélin við, en þegar krafist er fullrar hröðunar, þá fara báðir mótorarnir af stað, rétt eins og á tvímenningshjóli þegar reiðhjólamennirnir taka báðir á samtímis.

Tvær stillingar eru aukalega í boði, ECO og Power stillingar sem veita ökumanni aukið val á hvort eigi að draga úr útblæstri og spara eldsneyti eða fá enn meiri hröðun.
Sveigjanleiki Hybrid Synergy Drive býður Toyota einnig uppá að halda áfram að rannsaka breiða línu af þróuðum orkugjöfum og mismunandi gerðir af sparneytnum bílum sniðnum að þínum persónulegu þörfum. Á leið okkar að markmiðinu núll útblástur, erum við að hanna FT-EV II, rafmagnsbíl fyrir innanbæjarakstur og stuttar vegalengdir.

Plug-In hybrid bílar fara á markað innan tveggja ára. Með möguleika á að vera endurhlaðnir úr venjulegum innstungum, en þessi bíll kemur til með að vera sérstaklega hljóðlátur og með enn minni mengun í raf hafmnum.
Kostir Hybrid Synergy Drive eru augljósir, lítill CO2 útblástur og einstök sparneytni getur farið saman með óaðfinnanlegri hröðun og áreiðanleika. Meðan ekið er í rafstillingu er bíllinn alveg hljóður og útblástursfrír.
Lærðu meira um Auris
Lærðu meira um Prius