Í hverri nýrri kynslóð Toyota-bíla er að finna léttar og smábyggðar vélar og gírkassa sem bæta eldsneytisnýtingu og aksturseiginleika. Þetta hjálpar til við að gera bílana léttari og minni sem dregur úr eldsneytisnotkun og koltvísýringslosun.

Sigursæl 1,0 lítra vélin er úr áli og vegur aðeins 67 kg, og er sú léttasta á markaðnum.

Hin ofursmáa 1,33 lítra Dual VVT-i sækir velgengni sína og netta hönnun til uppgötvana í kappakstri: Öflug fjögurra strokka vél sem er jafnstór þriggja strokka vél.

Til að mynda hefur stimpilstærð verið minnkuð um 30% frá fyrri vél og einnig hefur verið dregið úr þyngd um 36%, úr 280 g í 180 g, sem merkir að minna afl þarf til þess að hreyfa stimplana.

Toyota er leiðandi í tæknimálum og kynnir nú háþróað „Stop & Start“-kerfi sem slekkur sjálfkrafa á vélinni þegar bíllinn er kyrrstæður: enginn útblástur, enginn hávaði, enginn titringur. Hún ræsir aftur á 0,4 sekúndum um leið og þú stígur af kúplingunni, án þess að bíða þurfi eftir afli. Þægilegt og sparar eldsneyti.

Tafarlaus ræsing er möguleg, jafnvel þó að vélin hafi ekki stöðvast algjörlega, þökk sé fullkominni gíratækni.

Startarinn er ekki knúinn með belti þannig að togmörk kerfisins eru engin, hvort sem er í hita eða kulda.*

Í þessu byltingarkennda kerfi felst:

- Minni eldsneytisnotkun í innanbæjarakstri
- Aukin þægindi vegna hljóðlausrar, mjúkrar og skjótrar ræsingar

* „Stop & Start“-kerfið frá Toyota er hannað til að vinna við tilteknar aðstæður. Hafðu samband við söluaðila og/eða skoðaðu notendahandbókina til að fá frekari útskýringar.

„Stop & Start“-kerfið kemur í Urban Cruiser og IQ með 1,33 lítra vél.

Toyota hefur þróað fjölda tæknilausna til að hámarka afköst bruna.

Hin fágaða 1,33 lítra vél er búin tækni í anda kappakstursbíla til að ná fram auknu afli og bættri eldsneytisnýtingu. Á meðal tækniatriða er ótrúlega hátt þjöppunarhlutfall, sem er sambærilegt og í kappakstursbíl.

Hið byltingarkennda Valvematic-kerfi skilar framúrskarandi brunaafköstum með því að stjórna ventlatíma og ventlalyftu samtímis. Tækni sem skilar hámarksafköstum sama hver vélarhraðinn er.

Afköst, koltvísýringslosun, afl og togkraftur eru eins og best verður á kosið í bensínvélunum, þökk sé nýrri Valvematic-tækni, ventlalyftu og -tíma sem skila einstakri eldsneytisnýtingu og afköstum við hvaða hraða sem er.

Valvematic er nýstárleg tækni frá Toyota sem byggist á dual VVT-i-tækninni. Auk breytilegs tíma sogventla og útblástursventla bætir Valvematic við lyftustjórnunarkerfi sem breytir stöðugt lyftu sogventlanna til að ná betri stjórn á magni og hraða inntakslofts, sem skilar sér í hagkvæmari blöndu lofts og eldsneytis og dregur þannig úr eldsneytisnotkun.

Þetta skilar sér í framúrskarandi skilvirkni bruna sem veitir allt að 10% meira afl með 10% minni eldsneytisnotkun og koltvísýringslosun.

Nýju Toyota Optimal Drive D-4D og D-CAT vélarnar nota glænýja þrýstiraftækni.

Segulliðaspíssum fyrri dísilvéla hefur verið skipt út fyrir nýja og afkastamikla þrýstirafspíssa.

Þrýstirafspíssar geta stjórnað eldsneytisinntaki og tímaskiptingu innspýtingarinnar með þrefalt meiri nákvæmni. Aukinn innspýtingarþrýstingur, hæsti þrýstingur í kerfum af stærðinni 2000 bör, ásamt nýja þrýstirafspíssinum skilar betri eldsneytisspýtingu og því betri blöndun og bruna. Nákvæmari stjórnun á hlutfalli lofts og eldsneytis dregur úr eldsneytisnotkun.

Þetta fullkomna kerfi skilar afli og togkrafti eins og best gerist og eldsneytisnýting er mikil.

Toyota er leiðandi í tæknimálum og kynnir nú háþróað „Stop & Start“-kerfi sem slekkur sjálfkrafa á vélinni þegar bíllinn er kyrrstæður: enginn útblástur, enginn hávaði, enginn titringur. Hún ræsir aftur á 0,4 sekúndum um leið og þú stígur af kúplingunni, án þess að bíða þurfi eftir afli. Þægilegt og sparar eldsneyti.

Tafarlaus ræsing er möguleg, jafnvel þó að vélin hafi ekki stöðvast algjörlega, þökk sé fullkominni gíratækni.

Startarinn er ekki knúinn með belti þannig að togmörk kerfisins eru engin, hvort sem er í hita eða kulda.*

Í þessu byltingarkennda kerfi felst:
- Minni eldsneytisnotkun í innanbæjarakstri
- Aukin þægindi vegna hljóðlausrar, mjúkrar og skjótrar ræsingar

* „Stop & Start“-kerfið frá Toyota er hannað til að vinna við tilteknar aðstæður. Hafðu samband við söluaðila og/eða skoðaðu notendahandbókina til að fá frekari útskýringar.
„Stop & Start“-kerfið kemur í Urban Cruiser og IQ með 1,33 lítra vél

Nýja rafstýrða kerfið fullkomnar afköstin á hvaða vélarhraða sem er. Dregið er úr töf á litlum hraða og togkraftur er hámarkaður á öllu vélarsviðinu. Meiri togkraftur, aukið viðbragð, meira fjör.

Á litlum hraða er dregið úr töf með því að minnka stærð úðarans sem hraðar útblæstri inn í forþjöppuna. Það skilar sér í fljótari sprautun, bættu viðbragði inngjafarinnar og þar af leiðandi auknu afli, togkrafti og afköstum.

Á miklum hraða er úðarinn opnaður og meira lofti veitt inn í forþjöppuna sem skilar meira afli.
Þá veldur virk rafstýring því að vélin bregst skjótar við en hefðbundin vélakerfi.

Í hverri nýrri kynslóð Toyota-bíla er að finna léttar og smábyggðar vélar og gírkassa sem bæta eldsneytisnýtingu og aksturseiginleika. Þetta hefur skilað sér í léttari og minni bílum sem draga enn úr eldsneytisnotkun og koltvísýringslosun.

Auk þess hefur endurbætt hönnun sex gíra beinskiptingarinnar minnkað gírkassann um 11% og íhluti um 15%. Minni þyngd, aukin afköst og bætt eldsneytisnýting.

D-4D-tækni Toyota gefur af sér kraftmiklar en þó umhverfisvænar dísilvélar. Fullkomin „common rail“ innspýting stillir þrýsting, tímasetningu og magn innspýtingarinnar og sprautar fíngerðum úða af eldsneyti undir miklum þrýstingi beint inn í brunahólfið.

Einstök samsetning lágs þjöppunarhlutfalls og afkastamikillar forþjöppu skilar ótrúlegu afli og vélarafköstum.
Ný lögun brunahólfsins þar sem brunaferlið er fullkomnað skilar líka sínu. Ásamt því að skila lítilli koltvísýringslosun og eldsneytisnotkun draga vélar með fínstilltum bruna stórlega úr sótögnum og köfnunarefnisoxíði í útblæstri. Síðast en ekki síst eru 2,0 og 2,2 D-4D vélarnar allar í samræmi við Euro V staðla.

Einn þáttur við Toyota Optimal Drive er að dregið hefur verið úr titringi.

Nú vinna allar Toyota-vélar og gírskiptingar með hámarksafköstum sökum hönnunar þar sem dregið er úr titringi allra hreyfanlegra hluta og tilkomu olíu með lítilli seigju fyrir allar vélar.

Einn af þáttum Toyota Optimal Drive er að dregið er úr titringi. Gírkassar og vélar Toyota fela í sér aukin afköst vegna hönnunar þar sem dregið er úr titringi á öllum hreyfanlegum íhlutum og með tilkomu olíu með lítilli seigju.

Aðeins eitt dæmi. 1,33 bensínvélin er búin glænýjum stimplum sem voru hannaðir þannig að þeir skila skjótu og skilvirku brunaferli. Til að draga úr titringi og auka afköst var snertiflötur minnkaður um 30%.

Einnig var dregið úr þyngd stimplanna um 36%, sem veldur því að minna afl þarf til að hreyfa þá. Auk þess er 1,33 bensínvélin búin kambás og vippuhlífum sem draga úr titringi í öllu ventlakerfinu: Ekki er lengur um titringsþrýsting að ræða heldur veltibúnað með litlum titringi.

Í öllum nýjum gerðum Toyota er hægt að velja á milli gírskiptinga. Þar á meðal er 6 gíra beinskipting eða sjálfskipting, eftir því hvaða vél er valin.
Toyota þróaði nýja sex gíra beinskiptingu fyrir 1,4 D-4D með hlutföllum sem reiknað hefur verið að skili besta mögulega jafnvægi afkasta og eldsneytisnýtingar. Tvinnskaftið er 11% smærra og hefur 15% færri íhluti en fimm gíra skiptingin en nær meiri togkrafti.

Í fyrsta sinn í dísilfarþegabíl frá Toyota er að finna sex gíra sjálfskiptingu og hægt að velja hana í 2,2, lítra D-CAT vélinni.

Þessi glænýja gírskipting er lítil og einstaklega mjúk. Hún er búin fullkominni skiptingu sem bregst við ástandi vega og fyrirætlunum ökumannsins. Auk þess er hún með sex gíra raðskiptri M-stýringu með gírskiptiflipum og „pípir“ þegar skipt er niður sem eykur ánægjuna og tilfinninguna.

Í öllum nýjum gerðum Toyota er hægt að velja á milli nýrra gírskiptinga. Þar á meðal er sjö gíra Multidrive-sjálfskipting og ný sex gíra beinskipting, eftir því hvaða vél er valin.

Multidrive sameinar mýkt sjálfskiptingar og sparneytni beinskiptingar. Það stillir áreynslulaust trissuhlutfall svo að eldsneytisnýting er með sem bestum hætti.

Nýja Multidrive-sjálfskiptingin er búin háþróuðu rafrænu stjórnkerfi sem líkir eftir sjö gíra sjálfskiptingu með sportstillingu og Multidrive S er búið raðskiptri sjö gíra flipaskiptingu.

Toyota þróaði nýja sex gíra beinskiptingu með hlutföllum sem reiknað hefur verið að skili besta mögulega jafnvægi afkasta og eldsneytisnýtingar. Tvinnskaftið er 11% smærra og hefur 15% færri íhluti en fimm gíra skiptingin en nær meiri togkrafti.

Hið einstaka Toyota D-CAT kerfi notar nýjan hvarfakút, DPNR, til að hreinsa útblástur vélarinnar. DPNR (Diesel Particulate NOx Reduction) dregur stöðugt úr bæði köfnunarefnisoxíði og sótögnum með því að safna þeim tímabundið í síu.

Þegar skynjarar greina að DPNR-hvarfakúturinn er mettaður hefst endurnýjunarferli: Sérstök innsprautun sprautar eldsneyti í útblásturinn sem hækkar hitann og þar af leiðandi oxun hinna geymdu köfnunarefnisoxíðs- og sótagna í skaðlausar einingar.

Saman hefur þetta sett 2,2 D-CAT vélina á stall með umhverfisvænstu dísilvélum í heiminum með tilliti til bæði köfnunarefnisoxíðs og sótagna í útblæstri.

Frekari upplýsingar

Toyota er leiðandi í tæknimálum og kynnir nú háþróað „Stop & Start“-kerfi sem slekkur sjálfkrafa á vélinni þegar bíllinn er kyrrstæður: enginn útblástur, enginn hávaði, enginn titringur. Hún ræsir aftur á 0,4 sekúndum um leið og þú stígur af kúplingunni, án þess að bíða þurfi eftir afli. Þægilegt og sparar eldsneyti.

Tafarlaus ræsing er möguleg, jafnvel þó að vélin hafi ekki stöðvast algjörlega, þökk sé fullkominni gíratækni.

Startarinn er ekki knúinn með belti þannig að togmörk kerfisins eru engin, hvort sem er í hita eða kulda.*

Í þessu byltingarkennda kerfi felst:

- Minni eldsneytisnotkun í innanbæjarakstri

- Aukin þægindi vegna hljóðlausrar, mjúkrar og skjótrar ræsingar

* „Stop & Start“-kerfið frá Toyota er hannað til að vinna við tilteknar aðstæður. Hafðu samband við söluaðila og/eða skoðaðu notendahandbókina til að fá frekari útskýringar.

„Stop & Start“-kerfið kemur í Urban Cruiser og IQ með 1,33 lítra vél.

Hið einstaka Toyota D-CAT kerfi notar nýjan hvarfakút, DPNR, til að hreinsa útblástur vélarinnar. DPNR (Diesel Particulate NOx Reduction) dregur stöðugt úr bæði köfnunarefnisoxíði og sótögnum með því að safna þeim tímabundið í síu.

Þegar skynjarar greina að DPNR-hvarfakúturinn er mettaður hefst endurnýjunarferli: Sérstök innsprautun sprautar eldsneyti í útblásturinn sem hækkar hitann og veldur þannig oxun hinna geymdu köfnunarefnisoxíðs- og sótagna í skaðlausar einingar.

Bætt hefur verið við nýjum og hraðvirkum þrýstirafspíssum sem sprauta nákvæmlega því magni eldsneytis inn í brunahólfið sem ökumaður vill hverju sinni.

Saman hefur þetta sett 2,2 D-4D 180 Clean Power dísilvélina á stall með umhverfisvænstu dísilvélum í heiminum með tilliti til bæði köfnunarefnisoxíðs og sótagna í útblæstri.