AYGO frá Toyota fær 4 stjörnur í árekstrarprófunum Euro NCAP

Toyota AYGO sem kom nýlega fram á sjónarsviðið hefur fengið fjórar stjörnur í árekstrarprófunum Euro NCAP.

Niðurstöðurnar undirstrika stöðu AYGO sem hágæðavöru í flokki minni smábíla (sub-B markaðshlutanum) á evrópska bílamarkaðinum. AYGO fékk 26 stig fyrir öryggi fullorðinna farþega.

AYGO fylgir fjögurra stjörnu einkunninni fyrir verndun fullorðinna eftir með þriggja stjörnu (36 stiga) einkunn fyrir verndun barna og tveggja stjörnu (14 stiga) einkunn fyrir öryggi fótgangandi vegfarenda.

Kazuhiko Miyadera, framkvæmdastjóri rannsókna- og þróunarsviðs Toyota í Evrópu sagði: „Það að ná fram árekstraröryggi á háu stigi í ökutæki sem er 3,4 metra langt reyndist verkfræðileg áskorun fyrir Toyota. 4 stjörnu einkunnin úr árekstrarprófunum Euro NCAP er frábær viðurkenning á starfi okkar.”

Bæði akstursöryggi og árekstraröryggi léku lykilhlutverk í hönnun AYGO. Meðal helstu öryggisaðgerða eru:

  • Sérlega höggþolið farþegarými (MICS) Toyota - sterk öryggisbygging sem dreifir orkunni frá árekstrum á framenda og á hlið um yfirbygginguna

  • Tveir loftpúðar fram í eru staðalbúnaður – og hægt er að velja um hliðarloftpúða og loftpúðatjöld sem valbúnað í öllum gerðum

  • Sætisbeltaviðvörun (með bjöllu)

  • ISOFIX-festingar fyrir barnabílstól á endasætum aftur í – með baksætum sem hægt er að leggja niður 50/50

Þar sem Toyota AYGO er hannaður sem hágæðaborgarbíll er lögð sérstök áhersla á verndun fótgangandi vegfarenda. Lykilsvæði á framhlutanum, stuðarafestingar, vélarhlíf og frambrettin eru byggð með orkugleypandi eiginleikum sem draga úr meiðslum við ákeyrslu.

Aksturs- og árekstraöryggi eru viðurkennd sem mikilvægur þáttur í öllum bílum frá Toyota og nýjustu gerðirnar af Toyota Avensis, Corolla Verso og Prius hafa allar fengið fimm stjörnur fyrir öryggi farþega í árekstrarprófunum Euro NCAP.

  • Aygo Byrjaðu upplifunina á vefnum.
  • Viðurkenningar Toyota Toyota hefur fengið margar alþjóðlegar viðurkenningar sem undirstrika skuldbindingu fyrirtækisins við gæði.
Senda á
Prentað þann 17. maí 2012