Ný Corolla fær 5 stjörnur í árekstrarprófunum Euro NCAP
- Ný Corolla fær hæstu einkunn í öryggi
- Sjötti Toyota bíllinn til að fá 5 stjörnur
- Fyrsti Sedan bíllinn í C-hluta til að fá 5 stjörnur
- Toyota er sterkur keppandi í Euro NCAP prófunum (Farþega, barna og vegfarenda)
Tíunda kynslóð Corollu er fyrsti Sedan bíllinn í C-hluta til að fá fimm stjörnur í árekstrarprófunum Euro NCAP og fer í hóp leiðtoga í öryggi í C-hluta, með samtals 34 stig í verndun fullorðinna.
Ný Corolla er sjötta bíltegundin frá Toyota til að fá fimm stjörnu einkunn frá Euro NCAP síðan Avensis í júní 2003. Aðrar Toyota gerðir með hámarks 5 stjörnu einkunn eru Yaris, Corolla Verso, Prius og hinn væntanlegi Auris.
Corolla er einnig í hópi leiðtoga í C-hluta með fjórar stjörnur fyrir öryggi barna og þrjár stjörnur í hinum tiltölulega nýja matshluta, öryggi vegfarenda.
Yfir heildina í Euro NCAP prófunum kemur Toyota best út með sex bílgerðir með fimm stjörnur fyrir öryggi farþega, sex bílgerðir með fjórar stjörnur fyrir öryggi barna og þrjár bílgerðir með þrjár stjörnur fyrir öryggi vegfarenda.
Andrea Formica, yfirvaraforseti sölu- og markaðsviðs, Toyota Motor Evrópu, sagði:"Þessi nýju öryggisverðlaun sýna greinlega skuldbindingu Toyota í að veita viðskiptavinum sínum bestu mögulegu öryggisvarnir fyrir hvern nýjan bíl sem hleypt er af stokkunum í Evrópu. Búist er við að þeir sex Toyota bílar sem fengu hámarks fimm stjörnu einkunn muni vera 70% af heildar sölumagni Toyota í Evrópu árið 2007.”
Ný Corolla er byggð á sterkri grind með framúrskarandi fyrirbyggjandi öryggiskerfum. Fæst með allt að níu loftpúðum, eins og hnépúða fyrir ökumann, sem minnkar líkur á meiðslum á fótum og neðri hluta líkama við árekstur.
Framsætin eru með annarrar kynslóðar "Whiplash Injury Lessening" (WIL) kerfi með sérstaklega hönnuðum höfuðpúðum og sætisrömmum. Bílbeltis áminning er staðalbúnaður.
Eins og með allar megingerðir Toyota er ný Corolla með Isofix barnasætisfestingar á hliðum aftursætanna. Festingar eru fáanlegar fyrir barnasæti og loftpúði í farþegaframsæti getur verið gerður óvirkur til að koma fyrir barnastól með bakhliðina fram. Þetta fyrirbyggjandi öryggi gaf Corollu framúrskarandi útkomu í öryggi barna með 4 stjörnur og 40 stig.
Corolla fékk 3 stjörnur og 23 stig fyrir öryggi vegfarenda með sérstakri áherslu á hönnun á framenda og vélarhlíf til að minnka hættur fyrir vegfarendur auk þess sem hæð vélarinnar hefur verið lækkuð.
Ásamt fyrirbyggjandi öryggiskerfum er ný Corolla með fjölda virkra öryggishluta sem auka akstursánægju og minnka líkur á árekstri. Ný og þróuð fram og afturfjöðrun tryggir yfirburða stöðugleika ásamt því að auðvelda meðhöndlun og þægindi við akstur.
Ný Corolla er með glænýtt bremsukerfi með læsivörn(ABS) sem er með "Electronic Brake force Distribution" kerfi og hemlunarhjálp (BA). Stöðugleikastýring (VSC) og gripstýring (TRC) eru einnig fáanlegar sem staðalbúnaður eða aukalega, fer eftir markaðssvæði.
Skyldir tenglar
- Fræðstu meira um Corollu.
- Euro NCAP niðurstöður: Lestu meira um niðurstöður öryggisprófana Corollu á heimasíðu Euro NCAP.
