Bílarnir okkar koma þér ekki aðeins á áfangastað. Þeir koma þér þangað heilu og höldnu.

Hjá Toyota er smíði öruggra bíla forgangsatriði. Rannsóknir og þróun Toyota á öryggi ökutækja tekur mið af virku og fyrirbyggjandi öryggi. Það byrjar á að greina hreyfiferil fólks og heldur áfram í gegnum tækniþróunina að bæta allan þann stjórnbúnað sem snýr að fólki. Þetta stuðlar að öruggari akstri. Að auki þurfa frumgerðir nýrra bílgerða að standast strangt árekstrarpróf áður en þær fara í almenna framleiðslu.
Vörn fyrir þig og þína farþega.

Skuldbinding Toyota gagnvart öryggi

Skuldbinding okkar sést í heimspeki okkar um virkt og fyrirbyggjandi öryggi. Virkt öryggi eru einfaldlega allir þeir hlutir sem hjálpa þér við að lenda ekki í slysi; gott viðbragð og stjórn, ABS bremsukerfi og stöðugleikastýring. Fyrirbyggjandi öryggi á hinn bóginn eru allir þeir hlutir sem hjálpa þér að komast hjá slysum eins og hliðar og fram loftpúðar, bílbeltakerfi og krumpusvæði. Það er einnig þróað öryggiskerfi bíla sem tekur öryggið inn í framtíðina með nýjungum eins og viðvörun fyrir þreytta ökumenn, loftpúðar fyrir vegfarendur og kerfi sem forðar slysum. En það stoppar ekki þar. Til að bæta umferðaröryggi þarf ítarlegt framtak sem skoðar allar hliðar í stöðunni og finnur úrlausnir sem teygja sig í hvert þrep í samfélaginu. Toyota vill fylgja slíku framtaki eftir með sínum mikla áherslum á öruggari ökutæki, öruggari bílstjóra og öruggara umferðar umhverfi.

Senda á
Prentað þann 17. maí 2012