Hraðþjónusta Toyota
Hraðþjónusta Toyota, við Dalbrekku, er þjónustuverkstæði með nýjum áherslum. Verkstæðið er sérhæft í Þjónustuskoðunum, smurþjónustu og smærri viðgerðum.

Verkferli eru skipulögð þannig að hver verkþáttur leiðir af öðrum á einfaldan, eðlilegan og virkan hátt allt frá því að tekið er við bílnum og þar til gengið er frá greiðslu. Á meðan þú bíður getur þú fengið þér kaffisopa, lesið dagblöðin eða farið á Internetið.
Hjá Hraðþjónustu Toyota er opnari dagskrá en hjá almennu verkstæði og því oftast hægt að koma og fá tíma strax. Bíllinn er svo að öllu jöfnu tilbúinn innan klukkutíma eftir að hann er tekinn inn. Sérhönnuð verkferli ásamt sérhönnuðum verkfærum og sérþjálfuðum tæknimönnum gera þetta kleyft án þess að slakað sé á gæðakröfum.
Ef upp koma verkefni sem ná út fyrir ramma Hraðþjónustu, veitir starfsfólk leiðbeiningar um aðra lausn.
